KK og Ellen

KK og Ellen systir hans eru með tónleika í Akureyrakirkju í kvöld.  Sem er bara æðislegt.  Ég er samt ekki alveg í stuði fyrir jólatónleika strax.  Annars mun Garðar Thor Cortes halda jóla og aðventutónleika með sinfóníuhljómsveit norðurlands 8. des.  Kannski að maður skelli sér þá frekar. 

Átti leið í Pennan Eymundsson í dag eins og svo oft áður því að þar er nú einu sinn Te og kaffi staðset.  Haldið þið að ég hafi ekki hitt svona skemmtileg á að Hundar í óskilum voru að spila og Sævar stóð sveittur og steikti pönnukökkur.  Ljúft að renna þeim niður með kaffibollanum.    Held að það verði mikið líf í Bókval (þetta hét alltaf Bókval í gamla daga og gengur en undir því nafni manna á milli ).  Held að það verði mikið um rithöfunda, upplestra, litla og létta tónleika.

Græni hatturinn er skemmtilegur tónleikastaður hérna á Akureyri.  Frekar lítill og kósý staður.  Dagskráin þessa helgi og næstu er alla vega frekar spennandi.  Í kvöld þá er Hundur í óskilum,  annað kvöld verða svo Hjálmar með tónleika, hugsa að ég skelli mér á þá.  Svo um næstu helgi þá verður Sniglabandið hérna og heldur uppi stuðinu.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband